Flokkur 1

Ljónafæði

Ljónafæði (e. Lion Diet) er hreinasta og strangasta form Carnivore-mataræðisins. Ljónafæði getur verið nauðsynlegt þeim sem eru t.d. með erfiða sjálfsofnæmissjúkdóma og þola illa annan mat en rautt kjöt, vatn og salt.

Hvað má ég borða á ljónafæði?

Eingöngu kjöt jórturdýra (vöðva, fitu og innmat), salt og vatn.

Hvaða dýr eru jórturdýr?

Um 200 tegundir jórturdýra finnast í heiminum í dag. Þetta eru dýr eins og geitur, antilópur, gíraffar, kýr, elgir, vísundar, buffalar og gnýir. Á Íslandi er algengast að borða nautgripi (nauta-, kúa- og kálfakjöt) og sauðfé (kinda- og lambakjöt). En einnig er hægt að fá hér geitakjöt og hreindýrakjöt.

Aðrar jórturdýrategundir sem gætu leynst í búðum hérlendis er kjöt af ýmsum hjartardýrum s.s. dádýrum eða elgum.

En þetta er svo einhæft fæði. Hvað get ég eiginlega eldað?

Það er ekki hægt að neita því að ljónafæði er ansi einhæft. Flest sem hafa verið lengi á slíku fæði verður þó oft nokkuð sama um einhæfnina og líkar einfaldleikinn. En fyrir þau sem vilja aðeins meiri fjölbreytni er samt sem áður hægt að breyta til með því að nota fjölbreyttar eldunaraðferðir og kjöttegundir. Það þarf ekki alltaf að borða bara ribeye í öll mál. Sem dæmi er hægt að búa til einfaldar soðsúpur úr kjöti og beinum, kjötið og beinin þurfa ekki einu sinni að vera af sama dýrinu.