Flokkur 6

Dýramiðað fæði

Í flokknum dýramiðað fæði má finna uppskriftir sem eru ekki endilega carnivore og hentar jafnvel frekar þeim sem eru á ketó eða öðru lágkolvetnafæði en þó með áherslu á dýraafurðir. Þetta eru ekki uppskriftir fyrir þau sem vilja vera á ströngu carnivore-fæði.

Hvaða matur telst til dýramiðaðs fæðis?

  • Allt kjöt (naut, svín, lamb, geit, kjúklingur, kalkúnn o.fl.) og innmatur (hjarta, lifur, nýru o.fl.)
  • Allur fiskur og skelfiskur (þorskur, ýsa, lax, túnfiskur, humar, rækjur, kræklingur o.fl.)
  • Egg (t.d. hænu- og andaregg)
  • Hreinar mjólkurvörur (t.d. hreint skyr, hrein jógúrt, kotasæla, ostar, rjómi, mjólk o.fl.)
  • Smjör
  • Þurrkuð krydd (óreganó, timjan, paprikuduft, cumin, kanill o.fl.)
  • Fersk krydd (chili, kóríander, basilika, engiferrót, hvítlaukur o.fl.)
  • Edik (eplaedik, borðedik, hvítvínsedik o.fl.)
  • Chilisósur (sem eru í grunninn edik og chili, ekki úr tómat) og ósætt sinnep
  • Ávextir og ber (epli,  jarðarber, bláber, appelsína o.fl.)
  • Hunang
  • Grænmeti í litlu magni
  • Fræ í litlu magni