Eggjabúðingur Bellu

4 egg

Vatn í sama magni og eggin, má líka nota gott kjötsoð

Salt

Aðferð:

  1. Fjögur egg sett í mælikönnu og fyllt upp með jafn miklu af vatni og salti bætt út í.
  2. Blandað vel saman með gafli.
  3. Sett í mót og gufusoðið við vægan hita, þar til blandan er hæfilega stíf. Búðingurinn á að verða flauelsmjúkur. Ef hann verður of stífur, jafnvel kornóttur, þá hefur hann verið soðinn við of háan hita eða of lengi.