Eggjabúðingur Bellu sem eftirréttur

4 egg

Vatn í sama magni og eggin (má líka nota rjóma eða rjóma og vatn)

Vanilludropar og/eða bökunarkrydd

Salt

  1. Fjögur egg sett í mælikönnu og fyllt upp með jafn miklu af vatni. Vanillu og salti bætt út í.
  2. Blandað vel saman með gafli.
  3. Sett í mót og gufusoðið við vægan hita, þar til blandan er hæfilega stíf.
  4. Búðingurinn á að verða flauelsmjúkur. Ef hann verður of stífur, jafnvel kornóttur, þá hefur hann verið soðinn við of háan hita eða of lengi.

Borinn fram heitur með smjöri/brúnuðu smjöri ef vill, eða kaldur.