Hollandaisesósa

2 eggjarauður

1 tsk kalt vatn

1 tsk sítrónusafi eða hvítvínsedik

200 g brætt smjör

salt og nýmalaður pipar

  1. Þeytið saman eggjarauður, vatn og sítrónusafa með töfrasprotinn eða handþeytara.
  2. Bræðið smjörið hellið því í mjórri bunu saman við eggjarauðurnar á sama tíma og haldið er áfram að þeyta. Sósan er smökkuð til með salti og pipar ef vill.

Það er hægt að gera ýmis tilbrigði við þessa sósu, breyta henni í karrýsósu eða nota kryddjurtir eins og estragon, herb de provence eða ítalska kryddblöndu. Eins má gera eftirréttasósu með því að nota vanillu eða bökunarkrydd.