Orkudrykkur

1 msk sítrónu- eða limesafi

1 ml (1 g) Lífsalt (fæst m.a. í Krónunni og Hagkaup, í hillu hjá öðru matarsalti)

2 – 3 dl hreint sódavatn

Aðferð:

  1. Safi og salt sett í glas og sódavatni er helt yfir.

1 ml / 1 g af salti er um 0,15 – 0,20 tsk eða góður hnífsoddur. Saltið má líka blanda til helminga með góðu borðsalti.

Þennan drykk er gott að drekka í byrjun þegar mataræðinu er breytt. Þá hefst oft mikil vatnslosun og rafvakar skolast út í leiðinni, sem getur valdið þreytu, höfuðverk og sleni. Í söltunum eru rafvakar sem bæta þetta upp. Síðar í ferlinu er þetta oftast óþarfi.

Þessi drykkur hentar líka vel í staðinn fyrir gos og er góð leið til að venja sig af því, hvort sem um er að ræða sykrað eða sykurlaust gos.