1 egg
Hálfur bolli rifinn ostur
- Pískið eggið og bætið síðan ostinum út í.
- Bakið í vöfflujárni, gjarnan belgísku eða sérstöku chaffle-járni.
Deigið má bragðbæta með kryddum sem passa við það sem á að borða með þeim. Þær henta vel hreinar í stað brauðs, s.s. pylsubrauð eða hamborgarabrauð. Líka hægt að borða með áleggi eða í grillaða samloku. Má bæta við vanillu og örfáum möndludropum eða bökunarkryddi til að hafa þær sem eftirrétt.
Á netinu eru fullt að chaffle-uppskriftum með allskonar hugmyndum. Það þarf bara að passa að margar þeirra eru með innihaldsefni sem alls ekki passa á þessu mataræði, en oft hægt að nota hugmyndina.