4 harðsoðin egg
4 msk mjúkt smjör (meira eða minna eftir smekk)
150 g hrein skinka
Aðferð:
- Eggin skorin í kross í eggjaskera og hrært saman við smjörið ásamt skinkunni. Má krydda ef vill.
Borðað eintómt, sem meðlæti eða ofan á skinku eða vöfflu.
Hægt að skipta skinkunni út fyrir t.d. 150 g hangikjöt eða stökkt beikon, 1 dós af túnfiski, stofuheitar rækjur, þurrsteikt hakk eða annað sem hugurinn girnist. Ágætt að setja smjörið síðast til að ákvarða hæfilegt magn og áferð.