2 eggjarauður
200 g brætt smjör (volgt)
1 tsk sítrónusafi
1 tsk eplaedik (eða annað edik)
Salt
½ tsk ósætt og hveitilaust sinnep ef vill (eða chilli, hvítlauksduft, tabasko, shiratsa)
- Allt nema smjörið þeytt saman með töfrasprota eða handþeytara.
- Haldið áfram að þeyta samhliða því sem smjörinu er hellt í mjórri bunu út í blönduna og þeytt þar til hún hefur þykknað.
- Geymt í krukku í ísskáp. Má taka fram og ná stofuhita til að fá mýkri áferð.
Hægt að skipta smjörinu út fyrir tólg, svínafitu, andafitu eða beikonfitu.